Tveir skjálftar yfir 3 stig

Af vef Veðurstofu Íslands

Tveir jarðskjálftar sem mældust yfir þrjú stig urðu á Reykjaneshrygg um fimm í nótt. Annar mældist 3,1 stig og hinn 3,3 stig, samkvæmt töflu á vef Veðurstofu Íslands. Báðir áttu upptök sín SSV af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg.

Jarðskjálftar yfir 3 stig síðustu 48 klukkustundirnar.
Jarðskjálftar yfir 3 stig síðustu 48 klukkustundirnar. Skjáskot af vef Veðurstofu Íslands

Alls hafa mælst fimm jarðskjálftar yfir 3 stig frá því á miðvikudag en þrír þeirra áttu upptök sín norðaustur af Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert