Eldur slökktur í ruslagámi á Granda

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu svaraði kallinu og samkvæmt upplýsingum þaðan gekk …
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu svaraði kallinu og samkvæmt upplýsingum þaðan gekk vel fyrir sig að slökkva eldinn. mbl.is/Eggert

Tilkynnt var um eld í ruslagámi og fiskikörum við Eyjaslóð á Granda í miðborg Reykjavíkur á öðrum tímanum í nótt.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu svaraði kallinu og samkvæmt upplýsingum þaðan gekk vel fyrir sig að slökkva eldinn.

Eldurinn var bundinn við ruslagám sem þarna er og hafði borist í fiskikör einnig, en ekki var á nokkrum tímapunkti hætta á því að hann bærist í nærliggjandi hús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert