Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna kórónaveiru

Kórónaveiran breiðist nú hratt út, en hún veldur alvarlegri lungnasýkingu.
Kórónaveiran breiðist nú hratt út, en hún veldur alvarlegri lungnasýkingu. AFP

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru. Þetta kemur fram á vef almannavarna. Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi, en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í samtali við mbl.is í morgun að fastlega væri gert ráð fyrir að veiran bærist til Íslands.

Í tilkynningu segir að í lok desember 2019 hafi borist fregnir af alvarlegum lungnasýkingum í Wuhan-borg í Kína. Í kjölfarið hafi verið staðfest að um áður óþekkt kórónaveiruafbrigði væri að ræða, sem nú kallast 2019-nCoV. Staðfest er að veiran smitast á milli manna og að hún getur valdið alvarlegum veikindum. Faraldurinn breiðist hratt út en enn sem komið er hafa flest tilfellin greinst í Kína.

Í ljósi þessa, og á grundvelli áhættumats Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Sóttvarnastofnunar ESB, hefur ríkislögreglustjóri lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru (2019-nCoV).

Óvissustigi er lýst þegar grunur vaknar um að yfirvofandi sé atburður sem hefur áhrif á lýðheilsu. Í kjölfarið er samstarf stofnana aukið, sem og upplýsingamiðlun. Vöktun er efld, áhættumat endurskoðað svo oft sem þurfa þykir og birgðastaða nauðsynlegra bjarga er könnuð og skráð. Farið er yfir viðbragðsáætlanir og fyrirliggjandi verkferla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert