Einn sexmenninganna, sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald 19. janúar vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skipulagðri brotastarfsemi, er laus úr haldi lögreglu.
Maðurinn var úrskurðaður í varðhald til 27. janúar en hinir fimm, sem enn eru í varðhaldi, voru úrskurðaðir í varðhald til 31. janúar.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að ekki hafi verið lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim sem var látinn laus úr haldi.
Áður hafði verið greint frá því að mennirnir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu, en ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á fíkniefni, vopn og fjármuni að sögn lögreglu.