Umboðsmaður óskar svara frá dómsmálaráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um hvort ráðuneyti hennar hyggist eða hafi þegar gripið til einhverra aðgerða til að bregðast við þeim vanda er lýtur að meðferð fjölskyldumála hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Tilefni fyrirspurnarinnar er kvörtun sem umboðsmanni barst vegna máls sem verið hefur til meðferðar hjá sýslumanninum í meira en tvö og hálft ár. Að mati sýslumannsembættisins sjálfs er óviðunandi bið eftir því að ágreiningsmál fái umfjöllun þar. 

Í bréfi Tryggva Gunnarssonar, umboðsmanns Alþingis, til ráðherra er meðal annars bent á að málflokkurinn varði mannréttindi og verulega persónulega hagsmuni barna og foreldra. Miklar tafir á afgreiðslu mála sem t.d. varði umgengni geti eftir atvikum falið í sér brot á réttinum til fjölskyldulífs. 

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, óskar eftir svörum frá dómsmálaráðherra vegna …
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, óskar eftir svörum frá dómsmálaráðherra vegna stöðu fjölskyldumála hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert

Ef ráðuneytið hyggst ekki grípa til einhverra aðgerða vegna stöðunnar óskar umboðsmaður eftir að það skýri ástæður þess og lýsi afstöðu sinni til þess hvort það samrýmist yfirstjórnar- og eftirlitshlutverki ráðherra gagnvart sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Þá vísar umboðsmáður í umfjöllun í fjölmiðlum um tafir á þinglýsingum og skráningu skjala hjá sama embætti og því er einnig óskað eftir að upplýst verði hvort ráðuneytið hafi brugðist við því.

Ráðherra fær frest til að svara umboðsmanni til 7. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert