Gaman að gleðja aðra

Ari Bragason er alltaf til reiðu með bros á vör …
Ari Bragason er alltaf til reiðu með bros á vör og aðstoðar viðskiptavini N1 á Bíldshöfða af alúð. mbl.is/RAX

Starfsmaður á plani er ekki lengur á hverju strái en Ari Bragason hefur staðið vaktina hjá N1 á Bíldshöfða í um sex ár og tekur á móti öllum viðskiptamönnum með bros á vör.

„Ég kann mjög vel við þessa vinnu og það er gott að vinna hjá N1 enda hef ég verið hjá fyrirtækinu í yfir átta ár, fyrst í Skógarseli og síðan hérna,“ segir hann.

Sumir kannast eflaust við Ara úr auglýsingum og haft hefur verið á orði að hann sé andlit fyrirtækisins. „Það segja það margir, en ég var bara beðinn að leika í þremur auglýsingum,“ segir hann.

Jákvæða viðmótið rekur Ari til tveggja alvarlegra slysa sem hann lenti í þegar hann vann hjá Samskipum.

Sjá viðtal við Ara í heild á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert