„Mér er nú bara smá brugðið“

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins.
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins. Eggert Jóhannesson

Ég veit svo sem ekki hvernig ruv virkar en mér er nú bara smá brugðið. Er fólk ekki hrætt um að hér séu hagsmunaárekstrar?“ Þetta skrifar Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, á Facebook en hún virðist ekki hrifin af ráðningu Stefáns Eiríkssonar í starf útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins.

„Nú verður okkur í minnihlutanum bara úthúðað á ruv og sagðar bara einhverjar englafréttir af meirihlutanum í borginni:) Dagur á þarna aldeilis góðan vin, hauk í horni,“ bætir Kolbrún við.

Stefán skrifaði pistil í lokaðan hóp starfsmanna Reykjavíkur á Facebook í febrúar í fyrra þar sem hann sakaði fáeina borgarfulltrúa um að hafa ítrekað vænt starfsfólk borgarinnar um óheiðarleika. 

Skrifin gagnrýndu fulltrúar minnihlutans í borginni þar á meðal Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins. Hún kallaði færsluna meðal annars „síðasta skítverkið fyrir borgarstjóra“.

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins. mbl.is/Hari

„Svo sammála Kolbrún Baldursdóttir - eru allir búnir að gleyma því að hann kallaði okkur í minnihlutanum „tudda á skólalóð“. Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir okkur verð ég að segja - hlutleysi hvað?“ skrifar Vigdís við færslu Kolbrúnar.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert