Ofbeldi gegn lögregluþjónum eykst

Tvö stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í desember.
Tvö stórfelld fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu í desember. AFP

Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi eða hótað ofbeldi fjölgaði á milli mánaða. Árið 2019 hafa verið skráð um 23 prósent fleiri tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi en skráð voru að meðaltali síðustu þrjú ár á undan.

Þetta kem­ur fram í mánaðar­skýrslu lög­reglu­stjór­ans á höfuðborg­ar­svæðinu fyr­ir desember 2019.

Skráð voru 633 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í desember og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða og var þar helst að sjá færri þjófnaði á farsímum og reiðhjólum.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkað töluvert á milli mánaða og á fækkunin við um bæði minni háttar og meiri háttar líkamsárásir. Árið 2019 bárust um sex prósent færri tilkynningar um ofbeldisbrot en bárust að meðaltali síðustu þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði lítillega á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í desember. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði einnig lítillega á meðan tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fækkaði.

Í desember voru skráð 757 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Árið 2019 voru skráð um 8% fleiri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali síðustu þrjú ár á undan.

Skýrsluna má skoða hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert