Upplýsingum/einblöðungum er varða smitgát vegna kórónaveirunnar hefur verið dreift á ensku og íslensku til ferðamanna á ferð um Keflavíkurflugvöll og aðra alþjóðaflugvelli hérlendis. Kínversk útgáfa er í vinnslu.
Þetta kemur fram í stöðuskýrslu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Veirusmit hafa verið staðfest hjá um 4.587 einstaklingum og um 106 einstaklingar hafa látist, að því er segir í skýrslunni. Auk þess eru upplýsingar um alvarleg veikindi hjá fjölda einstaklinga. Flestir þeirra sem hafa látist eru frá Hubei-héraði í Kína en veiran kom upp í borginni Wuhan í héraðinu.
Undirbúningur er hafinn að dreifingu SMS-skilaboða á íslensku, ensku og kínversku til ferðamanna þar sem eru veittar upplýsingar um hvert á að leita.
Fundur er fyrirhugaður á morgun með starfsfólki Keflavíkurflugvallar og verður upplýsingum komið áfram til annarra flugvalla.
„Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að veiran muni berast hingað til lands og því mikilvægt að grípa til ráðstafana til að hefta útbreiðslu hennar sem mest hér á landi. Engar aðgerðir munu hins vegar tryggja að veiran berist ekki hingað til lands,“ segir í stöðuskýrslunni.