Mengun í borginni í blíðunni

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins …
Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) mælist hár í borginni í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Klukkan 13 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 95 míkrógrömm á rúmmetra. Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnana og síðdegis þegar umferð er þung.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. 

Þar segir enn fremur, að gert sé ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og það séu umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Þá sé gert ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra.

„Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn, ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðargatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndurvegi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert