Tafir á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar

Miklar umferðartafir eru á umræddum gatnamótum. Mynd úr safni.
Miklar umferðartafir eru á umræddum gatnamótum. Mynd úr safni. Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Miklar umferðartafir eru á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar þar sem umferðarljósin á gatnamótunum eru í einhverju ólagi. Langar biðraðir hafa myndast og er lögreglan á leið á svæðið til að stýra umferðinni.

Blaðamaður mbl.is er einn þeirra sem situr fastur í bifreið sinni.

Hann segir að löng röð hafi myndast í austurátt en lögreglan sé á leiðinni til að greiða úr flækjunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert