Þrjátíu manns sagt upp hjá Póstinum

Pósturinn hefur sagt upp 30 manns.
Pósturinn hefur sagt upp 30 manns. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Pósturinn mun hætta dreifingu á ónafnmerktum fjölpósti á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Selfossi og Akranesi frá og með 1. maí. Rúmlega 30 starfsmönnum verður fyrir vikið sagt upp störfum frá og með deginum í dag.

Pósturinn heldur áfram að bjóða upp á dreifingu á fjölpósti á öðrum svæðum og í dreifbýli. Þessi breyting leiðir til um 200 milljóna króna lækkunar kostnaðar á ársgrundvelli hjá fyrirtækinu, að því er segir í tilkynningu.

Hefur áhrif á um 40 starfsmenn 

Breytingin hefur áhrif á um 40 starfsmenn en mögulegt er að færa um 10 starfsmenn til í starfi innan fyrirtækisins. Rúmlega 30 starfsmönnum verður því sagt upp störfum frá og með deginum í dag og er þar um að ræða starfsmenn í flokkun og dreifingu á svæðinu.

Rætt verður við þá starfsmenn sem missa vinnuna í dag en ekki verður óskað eftir starfsframlagi á uppsagnartímanum. Að auki verður þeim starfsmönnum sem missa vinnuna boðinn stuðningur við starfslokin svo sem sálfræðiþjónusta og ráðgjöf við atvinnuleit. Pósturinn hefur tilkynnt uppsagnirnar til Vinnumálastofnunar, stéttarfélaga og annarra sem hlut eiga að máli, samkvæmt tilkynningunni.

Engin bréf

Fram kemur að magn fjölpósts hafi dregist mikið saman á undanförnum árum og mikil fækkun almennra bréfa hafi haft í för með sér minni samlegðaráhrif á dreifingu bréfapósts og fjölpósts.

„Áður fóru bréfberar í nær öll hús með bréf og því féll það vel að starfseminni að dreifa fjölpósti á sama tíma en nú hefur bréfum fækkað svo mikið að oft fara bréfberar eingöngu með fjölpóst en engin bréf og því er lítill rekstrargrundvöllur fyrir þessari þjónustu,“ segir í tilkynningunni.

„Einnig ber að horfa til þess að sífellt stærri hópur almennings vill ekki fá fjölpóst, m.a. vegna umhverfissjónarmiða, og hefur sá hópur stækkað mikið á síðustu misserum. Sú þróun mun halda áfram með aukinni umhverfisvitund almennings og þróun á stafrænum lausnum. Þetta leiðir til þess að mikið magn pappírs sem sent er í dreifingu verður eftir í kerfi Póstsins sem flækir starfsemina og skapar kostnað og óhagræði.“

Þakkar fólki fyrir vel unnin störf

Um uppsagnirnar og breytingarnar kemur fram að mikil endurskipulagning fari núna fram á starfsemi Íslandspósts og eru þessar aðgerðir hluti af því ferli.

„Eins og kunnugt er fer nú fram mikil endurskipulagning á starfsemi Íslandspósts og eru þessar aðgerðir hluti af því ferli. Umbreyting fyrirtækisins hefur gengið vel og nú þegar má merkja viðsnúning í rekstrinum en ljóst er að verkefninu er hvergi nærri lokið og betur má ef duga skal. Við erum önnum kafin við að aðlaga reksturinn að kröfum á nútímamarkaði en í svona endurskipulagningu þarf að horfast í augu við staðreyndir og taka margar erfiðar ákvarðanir, þessi ákvörðun er ein þeirra. Ég þakka því góða starfsfólki sem nú kveður okkur fyrir vel unnin störf og óska þeim góðs gengis í næstu verkefnum,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert