Fjöldi fólks gegn brottvísuninni

Mynd af Muhammed sem birt er með undirskriftasöfnuninni.
Mynd af Muhammed sem birt er með undirskriftasöfnuninni. Skjáskot/change.org

Ríflega 3.500 manns hafa nú ritað nafn sitt við undirskriftasöfnun sem er í gangi á vefsíðunni change.org undir nafninu „Leyfum Muhammed og fjölskyldu að vera áfram á Íslandi!“. Með söfnuninni er skorað á íslensk stjórnvöld að hætta við brottvísun Muhammeds Zohair Faisal, sjö ára drengs, og fjölskyldu hans á mánudag en á vefnum kemur fram að þau fjölskyldan hafi búið hér á landi í tvö ár og tengst samfélaginu sterkum böndum. Nú eigi hins vegar að vísa þeim til Pakistan, hvert Muhammed hefur aldrei komið.

Muhammed sé búinn að eignast marga vini, leikskólafélaga á Dvergasteini og skólafélaga í Vesturbæjarskóla og Skýjaborgum. „Hann talar lýtalausa íslensku, er frábær námsmaður svo eftir er tekið og hefur tekist að bræða hjörtu allra þeirra sem hafa kynnst honum.“

Þá hafa ýmsir sem þekkja til drengsins skrifað við undirskriftasöfnunina falleg ummæli um drenginn, sem dæmi að hann tali betri íslensku en meirihluti íslensku barnanna sem eru með honum í skóla og að hann sé yndislegur. 

Beri ríkar skyldur

Þá segir jafnframt á vefsíðunni: „Barnasáttmálinn kveður á um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang í ákvörðunum stjórnvalda. Það felur meðal annars í sér að tryggja líf barns, þroska og öryggi, óháð lagalegri stöðu eða athafna foreldra hans eða hennar.

Þegar málsmeðferð ungs barns hefur staðið yfir í  rúmlega tvö ár bera stjórnvöld ríkar skyldur gagnvart barninu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heimaland foreldranna. Íslensk stjórnvöld hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn. Sýnum það í verki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert