Bíða eftir frekari upplýsingum frá ráðuneytinu

Í gær ákvað dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, að fresta því …
Í gær ákvað dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, að fresta því að vísa hinum sjö ára gamla Muhammed Zohir Faisal og for­eldrum hans úr landi í dag. Fyrirhugaðri brottvísun þeirra var harðlega mótmælt um helgina meðal annars með undirskriftarlista. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

„Við bíðum eftir frekari upplýsingum frá ráðuneytinu. Hvort ráðherra setji reglugerð eða hvort fyrirhugað sé að breyta lögum. Ég held að það sé ekki tímabært að nefndin bregðist við fyrr en ljóst er hvað ráðherra hyggst gera,“ segir Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður kærunefndar útlendingamála. 

Nokkur mál falla undir þær breytingar sem sem dómsmálaráðherra gerði í gær um að fresta brott­vís­un barna í þeim mál­um þar sem málsmeðferð hafi farið yfir 16 mánuði. Ekki er vitað nákvæmlega hversu mörg málin eru, að sögn Hjartar. 

Nefndin þarf að skoða þetta út frá jafnræðissjónarmiðum og teknar verða ákvarðanir út frá því, að sögn Hjartar. Nefndin kemur saman á fimmtudaginn í þessari viku en Hjörtur segir að nefndin muni að öllum líkindum ekki fjalla á þeim fundi um hvaða afleiðingar þessi ákvörðun ráðherra hefur.

Ekki er vitað til hversu margra fjölskyldna breytingarnar ná til.
Ekki er vitað til hversu margra fjölskyldna breytingarnar ná til. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í gær ákvað dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, að fresta því að vísa hinum sjö ára gamla Muhammed Zohir Faisal og for­eldrum hans úr landi í dag. Fyrirhugaðri brottvísun þeirra var harðlega mótmælt um helgina meðal annars með undirskriftalista. 

Fjöl­skylda Muhammeds sótti um hæli hér á landi í lok árs 2017 og hef­ur því dvalið hér í 26 mánuði. Á þeim tíma hafa þau aðlag­ast líf­inu á Íslandi vel, sér­stak­lega Muhammed sem stund­ar nám í Vest­ur­bæj­ar­skóla og unir sér vel. Hann tal­ar lýta­lausa ís­lensku, á fjölda vina og þykir af­burðanámsmaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert