„Náttúruöflin eiga síðasta orðið“

John Snorri Sigurjónsson fjallamaður ætlar að verða fyrsti maðurinn til …
John Snorri Sigurjónsson fjallamaður ætlar að verða fyrsti maðurinn til þess að klífa K2, næst hæsta tind heims, að vetrarlagi. Ljósmynd/Aðsend

Vetur konungur er svo sannarlega að gera vart við sig á fjallinu K2, sem fjallagarpurinn John Snorri klífur þessa dagana ásamt fríðu föruneyti. Útlit er fyrir slæmt veður á fjallinu út vikuna og er John Snorri kominn aftur niður í grunnbúðir en stefnan var sett á grunnbúðir tvö um helgina.  

John Snorri og göngu­fé­lagi hans Tomaz Rot­ar hafa náð að festa ör­ygg­is­lín­ur upp í 6.600 metra hæð fyr­ir leiðina upp í grunn­búðir tvö en hafa ekki náð að komast lengra sökum veðurs. 

„Við erum með sérstaka áætlun að sjálfsögðu fyrir K2-vetrarleiðangurinn en náttúruöflin munu eiga síðasta orðið. En móðir náttúra hefur ákveðið að ylja okkur með sólargeislum sínum í dag eftir ansi kalda daga,“ segir í facebookfærslu leiðangursins. John Snorri og Rotar hafa unnið í um 30 stiga frosti síðustu daga við að festa öryggislínur. 

Tind­ur K2 er í 8.611 metra hæð. Fjallið er það næsthæsta í heimi og stefnir John Snorri á að verða fyrsti maður­inn sem kemst á topp þess að vetri til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert