Tímabært að selja Íslandsbanka

Hvetja þarf fólk til dáða og skapa því ný tækifæri, …
Hvetja þarf fólk til dáða og skapa því ný tækifæri, segir Bjarni Benediktsson. mbl.is/Sigurður Bogi

„Nú þegar hagkerfið kólnar er augljós kostur að losa um eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum og verja fjármunum sem þannig fást í innviðafjárfestingar. Með slíku getur ríkið styrkt grunnstoðir og komið með innspýtingu eins og nú er þörf á.“

Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali í Morgunblaðinu í dag. Á morgun, fimmtudag, hyggst þingflokkur sjálfstæðismanna hefja fundaherferð um allt land, en Bjarni segir mikilvægt að heyra sjónarmið fólksins í landinu, nú þegar hagkerfið er að kólna og atbeina ríkisins því þörf á ýmsum sviðum.

Þá sé tímabært að hefja nú þegar undirbúning að sölu Íslandsbanka, sem er að fullu í eigu ríkisins. Eigið fé bankans í dag er um 170 milljarðar króna. „Miðað við verðmat markaðarins á fjármálafyrirtækjum er ólíklegt að við fengjum fullt bókfært verð fyrir bankann. Það er engu að síður rétt að mínu mati að losa um eignarhaldið í skrefum og 25% hlutur í bankanum er tuga milljarða króna virði. Þá fjármuni ættum við að nýta til arðbærra fjárfestinga í innviðum,“ segir fjármálaráðherra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert