Aðildarfélög BSRB greiða atkvæði um verkfall

Aðildarfélög BSRB sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og …
Aðildarfélög BSRB sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hafa samþykkt að undirbúa atkvæðagreiðslur um verkfallsboðun. Áfram halda þó kjarasamningsviðræður. mbl.is/Golli

Aðildarfélög BSRB sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hafa samþykkt að undirbúa atkvæðagreiðslur um verkfallsboðun. Atkvæðagreiðslurnar fari fram hjá hverju félagi fyrir sig 17. til 19. febrúar og áformaðar aðgerðir hefjist í mars.

Um 19 þúsund starfsmenn ríkis og sveitarfélaga starfa undir kjarasamningum aðildarfélaga BSRB. Félagsmenn aðildarfélaga BSRB sinna fjölbreyttum störfum til að mynda á Landspítalanum og í annarri heilbrigðisþjónustu, í velferðarþjónustu, skólum, leikskólum og frístundaheimilum, í sundlaugum, íþróttahúsum og þjónustu við aldraðra og fólk með fötlun. 

Félögin hafa verið kjarasamningslaus í á ellefta mánuð en kjarasamningsviðræður munu halda áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða. 

Landssamband lögreglumanna og Tollvarðafélag Íslands hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en félagsmenn þeirra hafa ekki verkfallsrétt og munu félögin því ekki boða til sambærilegra aðgerða. Þá styðja fangaverðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verkfallsrétt, aðgerðirnar þótt þeir verði að standa utan við þær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert