Hjólabúnaður vélar Icelandair brotnaði í lendingu

Hér má sjá vélina sem um ræðir, en myndin er …
Hér má sjá vélina sem um ræðir, en myndin er tekin út um glugga á annarri vél á flugvellinum. Ljósmynd/Snorri Már Skúlason

Neyðarástandi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli um klukkan hálffjögur í dag þegar farþegaþotu Icelandair, sem var að koma frá Berlín, hlekktist á eftir lendingu er hjólabúnaður hennar brotnaði. 166 voru um borð, 160 farþegar og 6 manna áhöfn.

Á myndinni sést hvernig annar hreyfill vélarinnar liggur niðri við …
Á myndinni sést hvernig annar hreyfill vélarinnar liggur niðri við jörðina. Ljósmynd/flugblogg.is

Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair urðu engin slys á fólki en unnið er að því að koma fólki frá borði. Samhæfingarstöð almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í Skógarhlíð var virkjuð með fullu viðbragði vegna atviksins.

Ljósmynd/Aðsend

Samkvæmt heimildum mbl.is var lendingin ansi harkaleg, en viðbragðs- og áfallateymi hafa verið virkjuð og haft hefur verið samband við rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúa Isavia, segir vélina enn vera á flugbrautinni, en verið að bíða eftir því að fá stigabíla og rútur til að hleypa fólki frá borði. Hin flugbrautin er þó í notkun á meðan.

Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert