Upplýsir um æskilegan hámarkshraða

Prófanir. Karl Birgir Björnsson, Einar Hansen hjá Landhelgisgæslunni og Björn …
Prófanir. Karl Birgir Björnsson, Einar Hansen hjá Landhelgisgæslunni og Björn Jónsson fara yfir niðurstöður. Ljósmynd/Hefring ehf.

Rannsóknir sýna að um allan heim slasast árlega um 355 þúsund manns um borð í skemmtibátum.

Þetta segja þeir Björn Jónsson og Karl Birgir Björnssona, sem standa að fyrirtækinu Hefring ehf., í Morgunblaðinu í dag. Líklegt er að um helmingur slíkra slysa sé tilkynntur.

Þeir hafa þróað og lokið prófunum á „vaktara“, eða leiðbeinandi siglingakerfi, sem mælir sjó- og öldulag og gefur upplýsingar um æskilegan hámarkshraða. Karl Birgir segir að ef farið sé eftir leiðbeiningum kerfisins eigi að vera hægt að fækka verulega slysum um borð í bátum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert