Jarðskjálfti 3,6 að stærð á Hengilssvæðinu

Jarðskjálfti varð á hengissvæðinu.
Jarðskjálfti varð á hengissvæðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Snarpur jarðskjálfti á Hengilssvæðinu varð klukkan 7:24 í morgun. Samkvæmt fyrstu skoðun er hann 3,6 að stærð. Skjálftinn á upptök sín um 4 km norðvestur af Hengilssvæðinu og var hann á 6,8 km dýpi. 

Veðurstofunni hafa borist tugir tilkynninga um að skjálftinn hafi fundist víða á höfuðborgarsvæðinu, í Hveragerði og á Akranesi. Að svo stöddu hafa tíu mun minni eftirskjálftar mælst.

„Miðað við staðsetningu eru þetta líklega flekahreyfingar. Þetta er á mjög virku jarðskjálftasvæði,“ segir Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands. Skjálftinn fannst greinilega í byggð því hann var ekki langt frá höfuðborgarsvæðinu. 

Tengist ekki landrisi á Reykjanesi 

Þessi skjálfti á Hengilssvæðinu tengist ekki beint landrisi á Reykjanesi og mögulegri kvikusöfnun þar, að sögn Einars Bessa. Staðan þar er óbreytt en áfram mælist fjöldi smáskjálfta á því svæði.  

„Þetta er áminning til fólks um að við búum á virku landi,“ segir Einar Bessi. 

Síðast varð skjálfti stærri en 3,0 á Hengilssvæðinu í september 2019 og þar áður í febrúar 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert