Myndi ekki skila árangri að funda í dag

Verkfallsaðgerðir félagsmanna Eflingar halda áfram á morgun.
Verkfallsaðgerðir félagsmanna Eflingar halda áfram á morgun. Eggert Jóhannesson

Fundi samninganefnda Eflingar og Reykjavíkurborgar í kjaradeilu félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg, sem átti að hefjast klukkan tvö í dag, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Vísir greindi fyrst frá.

„Það var mat sáttasemjara sem er með málið að það myndi ekki skila miklum árangri að halda fundinn í dag. Það þyrfti aðeins að undirbúa þetta betur,“ segir Elísabet Ólafsdóttir, skrifstofustjóri ríkissáttasemjara, í samtali við mbl.is. Næsti fundur hefur ekki verið tímasettur.

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir samninganefnd Eflingar vera sátta við frestun fundar. „Þetta er í góðu lagi okkar vegna, ekkert stress.“

Hann segir samninganefnd þeirra treysta mati ríkissáttasemjara. „Hann er í samskiptum við báða deiluaðila. Þetta er hans ákvörðun og hans mat.“

Verkfallsaðgerðir munu því halda áfram á morgun, þriðjudag, en vinna verður lögð niður klukkan 12:30.

Dag­skrá fyr­ir­hugaðra vinnu­stöðvana má sjá hér að neðan:

Þriðju­dag­ur 11. fe­brú­ar 2020: Vinna lögð niður frá kl. 12.30 og fram til klukk­an 23.59.

Miðviku­dag­ur 12. fe­brú­ar 2020: Vinna lögð niður frá kl. 00.01 og fram til klukk­an 23.59.

Fimmtu­dag­ur 13. fe­brú­ar 2020: Vinna lögð niður frá kl. 00.01 og fram til klukk­an 23.59.

Mánu­dag­ur 17. fe­brú­ar 2020: Vinna lögð niður frá kl. 00.01 og ótíma­bundið eft­ir það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert