Verkfallsaðgerðir næstu þrjá daga

mbl.is/Eggert

Útlit er fyrir rask á þjónustu leikskóla hjá Reykjavíkurborg næstu þrjá daga, en fyrirhugað verkfall félagsmanna Eflingar sem starfa hjá borginni hefst kl. 12:30 á morgun og mun ekki ljúka fyrr en á miðnætti fimmtudaginn 13. febrúar. Fundi í deilu Reykjavíkurborgar og Eflingar var frestað í dag.

Samkvæmt tilkynningu frá borginni munu aðgerðir Eflingar hafa áhrif á rúmlega helming leikskólabarna í borginni, eða um 3.500 börn, rétt eins og í síðustu viku. Verkfallið hefur einnig áhrif á 1.650 notendur velferðarþjónustu borgarinnar auk þess sem sorphirða frestast í þeim hverfum þar sem tæming á að fara fram samkvæmt sorphirðudagatali.

„Mest verða áhrif verkfallsaðgerða Eflingarfólks á leikskólana auk matarþjónustu í grunnskólum. Þeim börnum sem fá vistun í leikskólum verður skipt upp í hópa, einn fyrir hádegi og annar eftir hádegi. Fyrirséð er að matarþjónusta í einhverjum grunnskólum borgarinnar raskast og þurfa nemendur þar að koma með nesti í skólann,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Undanþágur fyrir viðkvæmustu þjónustuna

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur þegar fengið undanþágur frá verkfallsaðgerðum fyrir það starfsfólk Eflingar sem sinnir viðkvæmustu þjónustunni er snýr að umönnun fatlaðs fólks, barna, aldraðra á hjúkrunarheimilum og í heimahúsum, barna og fólks sem þarf á neyðarþjónustu að halda í gistiskýlum.

„Eftir því sem verkfallstíminn lengist mun það hafa meiri áhrif á þá sem njóta velferðarþjónustu frá borginni. Þrif á heimilum fatlaðs fólks og aldraðra falla niður, sömuleiðis aðstoð við böðun. Ekki verður hægt að kaupa máltíðir á félagsmiðstöðvum og þá verður dagdvöl aldraðs fólks í Þorraseli lokuð meðan á verkfalli stendur.

Hjá Sorphirðunni frestast þjónusta en að auki er vetrarþjónustu eins og hálkuvörnum og snjóhreinsun ekki sinnt á meðan verkfall stendur yfir. Þá er ekki hreinsað í kringum grenndarstöðvar og ruslastampar ekki tæmdir,“ segir í tilkynningu borgarinnar, en eins og fram hefur komið hefur Efling boðað til allsherjarverkfalls frá og með 17. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert