Kæra fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrir fjárdrátt

Stuðningsmenn ÍR í stuði á körfuboltaleik síðasta vor. Fyrrverandi framkvæmdastjóri …
Stuðningsmenn ÍR í stuði á körfuboltaleik síðasta vor. Fyrrverandi framkvæmdastjóri íþróttafélagsins hefur nú verið kærður af aðalstjórn þess fyrir margmilljóna fjárdrátt. mbl.is/Hari

Aðalstjórn ÍR hefur falið lögmanni að leggja fram kæru á hendur fyrrverandi framkvæmdastjóra íþróttafélagsins vegna ætlaðrar misnotkunar á reikningum og fjármunum félagsins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef ÍR í kvöld.

„Eins og fram hefur komið í fréttum hefur stjórn félagsins verið að rannsaka fjárreiður félagsins vegna gruns um misferli. Grunur vaknaði um misferlið í byrjun vetrar og eftir fyrstu skoðun stjórnar félagsins á fjárreiðum framkvæmdastjóra í nóvember 2019 var haldinn fundur með framkvæmdastjóra þann 15. nóvember 2019. Hann lét þegar af störfum án uppsagnarfrests og án frekari réttar til launa. Var jafnframt lokað fyrir aðgang hans að reikningum og bókhaldi félagsins,“ segir í yfirlýsingu aðalstjórnarinnar.

Stjórn félagsins komst að því við yfirferð reikninga félagsins að framkvæmdastjórinn hefði tekið rúmar sex milljónir króna af fjármunum félagsins með óheimilum hætti á starfstíma sínum, sem spannaði rúmt ár, frá 1. október 2018 til starfsloka 15. nóvember 2019. Framkvæmdastjórinn er búinn að greiða þessa fjármuni til baka.

Óútskýrðar millifærslur á lengra tímabili nema 10 milljónum

En stjórnarmenn ÍR hafa einnig komist að því að framkvæmdastjórinn fyrrverandi virðist hafa notað reikninga félagsins í eigin þágu þegar hann gegndi öðrum trúnaðarstörfum á vegum ÍR, frá 2014 til 2019.

„Leitað hefur verið skýringa á þessum millfærslum, sem nema röskum 10 milljónum króna, og verður það hlutverk lögreglu að meta hvort ástæða er til frekari aðgerða vegna þess,“ segir stjórnin í yfirlýsingunni.

„Aðalstjórn mun einnig áfram vinna í því að fá skýringar á greiðslum sem fóru af reikningum félagsins eða einstakra deilda til fyrrum framkvæmdastjóra og krefjast endurgreiðslu á þeim fjármunum sem áttu að renna til ÍR. Aðalstjórn á engan annan kost en að vísa framhaldi þessa máls að öðru leyti til til þess bærra yfirvalda. Þá mun aðalstjórn leita leiða til að koma í veg  fyrir að slíkt endurtaki sig,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert