Líkur á að gul viðvörun verði appelsínugul

Gul viðvörun er í gildi á öllu landinu fyrir komandi …
Gul viðvörun er í gildi á öllu landinu fyrir komandi föstudag, en sérlega djúp lægð nálgast landið. Líkur eru á því að viðvörunin verði appelsínugul er líður á vikuna. Kort/Veðurstofa Íslands

Mikilvægt er að átta sig á því að gul viðvörun sem gefin er út þrjá til fimm daga fram í tímann táknar ekki endilega hversu slæmt veður er í vændum. Þetta fara sérfræðingar Veðurstofu Íslands yfir í færslu á vef stofnunarinnar í dag, þar sem veðurviðvörunarkerfið er útskýrt.

Gul viðvörun hefur þegar verið gefin út vegna sérlegra djúprar og ákafrar lægðar sem nálgast landið úr suðvestri. Viðvörunin tekur gildi aðfaranótt föstudags og gildir til 21 á föstudagskvöld.

Líkur eru á að áhrif veðursins verði umtalsverð og í færslu Veðurstofunnar segir að breytist spár ekki eftir því sem líður á vikuna færist viðvaranirnar upp um líkindaflokk og gul viðvörun breytist þá í appelsínugula. En af hverju er þá gefin út gul viðvörun núna?

„Jú, við notum gula litinn einnig til að vara við veðri lengra fram í tímann, 3-5 daga,“ rita sérfræðingar Veðurstofunnar, en í skýringartexta fyrir gula viðvörun segir að hún geti gefið til kynna „að litlar eða miðlungs líkur séu á mjög áhrifamiklu veðri 3-5 daga fram í tímann“.

„Þetta á einmitt við veðrið sem er í vændum. Þegar nær dregur og líkurnar á því spáin gangi eftir aukast hækkar viðvörunarstigið upp á appelsínugult. Þetta er útskýrt í því sem við köllum „Áhrifafylkið“. Þar er horft á „líkur“ og „áhrif“. Viðvörunarlitur ákvarðast þannig af mati sérfræðinga á áhrifum væntanlegs veðurs og líkum á því að spáin gangi eftir,“ segir í færslu Veðurstofunnar.

Miðað við hvernig spárnar fyrir föstudag líta út í dag, …
Miðað við hvernig spárnar fyrir föstudag líta út í dag, þriðjudag, er staðsetning viðvörunar í áhrifafylkinu í þeim kassa sem hakað er við á myndinni. Segjum sem svo að spárnar breytist ekki hvað varðar ákefðina í veðrinu. Líkurnar á því að spáin gangi eftir aukast hins vegar eftir því sem nær dregur föstudeginum og því myndi viðvörunin færast lóðrétt upp líkindaásinn og fá þannig appelsínugulan lit. Skýringarmynd af vef Veðurstofunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert