Vilja breyta reglum vegna Grímseyjar

Blikur eru á lofti í atvinnumálum eftir sölu á aflaheimildum.
Blikur eru á lofti í atvinnumálum eftir sölu á aflaheimildum. mbl.is/Golli

Bæjarráð Akureyrar hefur sent sjávarútvegsráðuneytinu beiðni um breytingu á skilyrðum um byggðakvóta hvað varðar vinnsluskyldu. Erfitt atvinnuástand í Grímsey er að baki umsókninni.

Á síðasta ári fóru rúmlega 1.100 þorskígildistonn af kvóta frá Grímsey til Fjallabyggðar með sölu á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Sigurbirni ehf. til Ramma hf., eða nær helmingur aflaheimilda sem útgerðir í Grímsey réðu yfir. Níu ársverk voru hjá Sigurbirni til lands og sjávar.

Rök fyrir beiðni bæjarráðs Akureyrar eru eftirfarandi: „Grímsey hefur verið skilgreind sem brothætt byggð og er hluti af samnefndu verkefni á vegum Byggðastofnunar en ekki liggur fyrir hvort og hvernig framhaldið á því verkefni verður. Einnig stendur yfir endurskoðun ríkisins á allri nýtingu byggðakvóta og hefur starfshópurinn ekki skilað af sér niðurstöðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert