Framkvæmdastjóra Sorpu sagt upp

Þá var ákveðið á stjórnarfundinum að ráða Dr. Helga Þór …
Þá var ákveðið á stjórnarfundinum að ráða Dr. Helga Þór Ingason, prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, tímabundið í starf framkvæmdastjóra SORPU bs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á stjórnarfundi SORPU bs. sem haldinn var í dag var ákveðið að segja upp framkvæmdastjóra félagsins, Birni H. Halldórssyni, með sex mánaða uppsagnarfresti skv. ráðningarsamningi.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að ákvörðunin eigi sér m.a. stoð í nýlegri skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um stjórnarhætti og áætlunargerð vegna gas- og jarðgerðarstöðvar þar sem gerðar voru alvarlegar athugasemdir við störf og upplýsingagjöf framkvæmdastjóra og gerð kostnaðaráætlana.

„Að fengnum andmælum framkvæmdastjórans við efni skýrslunnar var ákveðið að veita honum áminningu í samræmi við ákvæði kjarasamnings og gefa honum kost á frekari skýringum og athugasemdum. Að þeim fengnum og í ljósi annarra aðstæðna var tekin ákvörðun um uppsögn.“

Helgi Þór tímabundið ráðinn framkvæmdastjóri

Þá var ákveðið á stjórnarfundinum að ráða Dr. Helga Þór Ingason, prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, tímabundið í starf framkvæmdastjóra SORPU bs.

Helgi Þór er einnig forstöðumaður MPM náms - meistaranáms í verkefnastjórnun - við HR. Rannsóknir Helga Þórs og kennsla á framhalds- og grunnstigum háskóla hafa einkum snúist um verkefna- og gæðastjórnun. Helgi Þór var ráðinn tímabundið sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2010-2011.

Stjórn SORPU bs. mun ásamt Helga Þór og starfsmönnum SORPU bs. vinna að endurskipulagningu rekstrar fyrirtækisins með sjálfbærni, umhverfisvernd og samfélagslega þjónustu að leiðarljósi. Stjórnin mun í þeirri vinnu kappkosta að eiga náið samráð við eigendur SORPU bs. en félagið er rekið sem byggðasamlag sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert