Stuðningur við ríkisstjórnina mælist tæp 42%

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist tæplega 42% í könnun MMR.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist tæplega 42% í könnun MMR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,0%, mældist Samfylkingin með 15,1% fylgi, Miðflokkurinn mældist með 13,3% fylgi. Þá mældust Vinstri-græn með 10,7% fylgi, Píratar með 10,4% fylgi, Viðreisn með 9,7% fylgi og Framsóknarflokkurinn með 6,8% fylgi. Þetta kemur fram í könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina. 

Fylgi Sjálfstæðisflokks er þremur prósentustigum meira en í síðustu könnun MMR sem gerð var í seinni hluta janúar en 1,7 prósentustigum meira en var í upphafi janúar. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 41,9%.

Könnunin var framkvæmd 6. - 10. febrúar 2020 og var heildarfjöldi svarenda 1.003 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Fylgi við Sósíalistaflokk Íslands mældist 5,3% og Flokkur fólksins mældist með 4,6% fylgi. 

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (6,5%), myndu ekki kjósa (3,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,6%).

Sjá nánar hér á vefsíðu MMR

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert