Sigmundur Davíð skýtur á veganista

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

Furðulegt að sjá að fólk sem telur sig umhverfisverndarsinna skuli óska þess að álverinu í Straumsvík verði lokað,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, á Facebook-síðu sína. Hann segir að það ætti að sæma alla sem starfa í álveri á Íslandi orðu fyrir framlag sitt til loftslagsmála.

Greint var frá því í gær að álverinu yrði mögulega lokað á næstu mánuðum og spurði Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, hvaða starfsemi við viljum sjá til framtíðar í Straumsvík.

Sigmundur segir hins vegar að álverið í Straumsvík sé umhverfisvænt þegar allt er tekið með í reikninginn.

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Á Íslandi losna sem nemur um 2 tonnum af CO2 fyrir hvert framleitt tonn af áli. Í Kína, þar sem framleiðslan er knúin með kolabruna, losar sama framleiðsla um 21 tonn af CO2 eða um tífalt meira,“ skrifar Sigmundur og heldur áfram:

Álverið í Straumsvík framleiddi í fyrra 212 þ. tonn af áli. Ef sú framleiðsla flyttist til Kína, eins og hún myndi gera við lokun í Straumsvík, færi magn losunar úr 424 kt. af CO2 í 4.452 kt.

Sigmundur segir að munurinn á þessi nemi margfaldri losun vegna umferðar á Íslandi. Við þetta megi svo bæta við flugi, skipum, heimilum, landbúnaði, hinum ýmsu iðnfyrirtækjum án þess að það jafnist á við þá aukningu sem yrði á losun ef framleiðsla eins álvers flyttist frá Íslandi.

Með öðrum orðum. Þótt allar öfgakenndustu hugmyndir, til næstu áratuga, um að setja alla á reiðhjól, gera alla vegan og breyta Íslandi í „sænska hippakommúnu” myndu rætast næði það aldrei að vega upp þá aukningu sem verður á losun gróðurhúsalofttegunda ef álver flyst frá Íslandi.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert