Strætó aflýsir ferðum vegna veðurs

Strætó verður ekki á leið í fyrramálið.
Strætó verður ekki á leið í fyrramálið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Öllum akstri hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu verður aflýst í fyrramálið, 14. febrúar. Búast má við frekari upplýsingum milli kl. 10 og 11 á morgun.  

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Veður­stofa Íslands hef­ur hækkað viðvör­un vegna veðurs fyr­ir morg­undag­inn úr app­el­sínu­gulri í rauða á höfuðborg­ar­svæðinu, Suður­landi, Faxa­flóa og Suðaust­ur­landi.

Rauða viðvörunin er í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá því sjö til klukkan ellefu í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert