Ferðamönnum vísað frá Skógafossi vegna flóðahættu

Rennslið í Skógá í morgun var með minnsta móti en …
Rennslið í Skógá í morgun var með minnsta móti en eitthvað hefur bætt í síðan þá. Ljósmynd/Lögreglan

Mjög lítið rennsli er í Skógá og þar með Skógarfossi og gæti það stafað af krapastíflu í ánni sem síðan ryðji sig og við þær aðstæður geti komið flóð fram ána. Ferðamönnum hefur verið vísað fjær fossinum af öryggisástæðum og eru lögreglumenn og björgunarsveitarmenn á staðnum. 

Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á heimasíðu lögreglunnar en ekki hafa fundist heimildir um mögulega stærð slíks flóðs og að líkindum skiptir þar miklu máli hvar slík stífla er staðsett. 

Vatnamælingasviðið Veðurstofu Íslands hefur verið gert viðvart um stöðu mála. Veðurfarslegar aðstæður eru þannig að ekki er unnt að skoða ofar í ána að sinni en það verður gert um leið og viðrar til þess. Gul viðvörun er enn í gildi á Suðurlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert