Fjöldi eldinga handan skilanna

Elding.
Elding. Wikipedia

Veðrið heldur áfram að versna og nær bráðlega hámarki sunnan til á landinu, en með morgninum heldur áfram að hvessa nyrðra. Rauðar eða appelsínugular viðvaranir eru í gildi í öllum landshlutum. Fjöldi eldinga hefur mælst handan skilanna, og á Suðausturlandi eru líkur á að verði vart við eldingar þegar skilin ganga yfir, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Illviðrið gengur svo niður eftir hádegi og á miðnætti rennur síðasta gula viðvörunin út. Á morgun nálgast svo næsta lægð, hún er raunar enn dýpri en lægð dagsins í dag. Lægðin í dag ýtir hins vegar hæðinni yfir Grænlandi lengra til norðurs og verður þrýstibrattinn yfir landinu, og þar með vindstyrkur, ekki jafnmikill og í dag. Reiknað er með að gefa út viðvaranir vegna lægðarinnar á morgun síðdegis í dag, þegar núverandi veður byrjar að ganga niður.

„Víðáttumikil 934 mb lægð er nú stödd 500 km suður af Reykjanesi og samskil frá henni liggja að landinu. Nú þegar hefur hvesst um sunnanvert landið, víða rok eða ofsaveður og fárviðri á nokkrum stöðum. Mesti vindur, enn sem komið er, sem hefur mælst eru 40 m/s á Þyrli, innst í Hvalfirði, og 45 m/s á Stórhöfða en á síðarnefnda staðnum hefur einnig verið úrkomumest, 38 mm,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin fyrir daginn í dag og næstu daga

Austanrok eða -ofsaveður (23-30 m/s), en fárviðri (yfir 32 m/s) í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Víða slydda eða snjókoma, úrkomumest sunnan- og austanlands.

Snýst í sunnanhvassviðri sunnan til landinu síðdegis með rigningu á láglendi og hita 1 til 5 stig, en þá áfram rok og ofankoma um landið norðanvert.
Lægir talsvert á landinu í kvöld og dregur úr úrkomu.

Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s á morgun, en 20-25 um tíma syðst á landinu. Rigning eða slydda um landið sunnan- og austanvert. Þurrt norðan- og vestanlands framan af degi, en dálítil úrkoma þar síðdegis. Hiti 1 til 6 stig.

Á laugardag:
Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s, en 20-25 um tíma syðst á landinu. Rigning eða slydda um landið sunnan- og austanvert. Þurrt norðan- og vestanlands framan af degi, en dálítil úrkoma þar síðdegis. Hiti 1 til 6 stig.

Á sunnudag:
Austlæg átt 3-10 og stöku él, en léttskýjað á vestanverðu landinu. Vaxandi norðanátt síðdegis, 10-18 um kvöldið með snjókomu norðanlands. Frost 0 til 6 stig.

Á mánudag:
Norðanátt og él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan heiða. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:
Snýst í fremur hæga suðlæga átt með éljum sunnan- og vestanlands, en styttir upp og rofar til fyrir norðan og austan. Frost 0 til 8 stig, kaldast norðanlands.

Á miðvikudag:
Vaxandi austlæg átt með snjókomu eða slyddu sunnanlands, en þurrt og kalt norðan til á landinu.

Á fimmtudag:
Austan- og norðaustanátt með rigningu, slyddu eða snjókomu, en þurrt að kalla suðvestan til á landinu. Hiti kringum frostmark.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert