Lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum

Vindaspáin á Vestfjörðum kl. 12 í dag.
Vindaspáin á Vestfjörðum kl. 12 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt Veðurstofunni hefur verið mjög hvasst síðan snemma í morgun og skafrenningur til fjalla frá því í gær.

Búast má við því að snjóflóðahætta geti skapast í þessu veðri þar sem snjór safnast í fjöll en ekki er talin hætta í byggð eins og er, að því er kemur í tilkynningu frá almannavörnum. 

Áfram verður hvasst og hríðarveður fram yfir miðnætti á Norðurlandi og Vestfjörðum en þá dregur úr vindi og úrkomu. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist grannt með þessum aðstæðum í samráði við almannavarnir.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert