Skjálftavirkni yfir meðallagi

Dregið hefur úr landrisi á svæðinu en enn þá mælist …
Dregið hefur úr landrisi á svæðinu en enn þá mælist aflögun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jarðskjálftavirkni mælist enn á svæðinu norðan við Grindavík og er yfir meðallagi en er þó minni en þegar hún var hvað mest í lok janúar. Stærsti skjálfti sl. viku mældist 3,2 þann 11. febrúar kl.18:46 vestan við Þorbjörn.

Dregið hefur úr landrisi á svæðinu en enn þá mælist aflögun, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Mælingar hafa verið efldar við Þorbjörn, tveir nýir jarðskjálftamælar voru settir upp í vikunni sem leið, gasmælingar verða gerðar reglulega og telja vísindamenn að áfram þurfi að vakta svæðið vel.

Líklegasta skýring á þessari virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast er að virkninni ljúki án eldsumbrota. Næsti fundur vísindaráðs almannavarna verður haldinn, fimmtudaginn 20. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert