Bílvelta skammt frá Akureyri

Bílvelta varð við Moldhaugnaháls í gærkvöldi. Mynd úr safni.
Bílvelta varð við Moldhaugnaháls í gærkvöldi. Mynd úr safni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Bílvelta varð við Moldhaugnaháls, skammt norður af Akureyri, laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld. Karlmaður og unglingur voru í bílnum og náðu þeir að koma sér sjálfir út úr honum. Ekki er vitað hvað olli bílveltunni en hálka var á veginum. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri sluppu þeir nánast alveg ómeiddir en voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. 

Bíllinn var óökufær eftir veltuna og var fluttur af vettvangi með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert