Markmið Íslands náðust í öllum aðalatriðum

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur aðsetur í Genf í Sviss.
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur aðsetur í Genf í Sviss. AFP

Markmiðin sem lagt var upp með í tengslum við fulla aðild Íslands að mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna náðust í öllum aðalatriðum. Þetta er á meðal niðurstaðna skýrslu sem utanríkisráðuneytið vann eftir að kjörtímabili Íslands í mannréttindaráðinu lauk um áramótin.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segi að viðbrögðin á alþjóðavísu sýni að Ísland hafi staðist þá prófraun sem seta í ráðinu felur í sér. 

„Seta Íslands í mannréttindaráðinu er án efa eitt mikilvægasta verkefni sem íslensku utanríkisþjónustunni hefur verið falið og einn af hápunktum þess sem ég hef fengist við í embætti utanríkisráðherra. Verkefnið var prófsteinn á það hvernig íslenska utanríkisþjónustan tekst á við stór og vandasöm verkefni. Ef marka má umsagnir alþjóðlegra mannréttindasamtaka og stórra erlendra fjölmiðla má segja að við höfum staðist þá prófraun,“ segir í aðfararorðum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í skýrslunni.

Kjör Íslands bar að með skömmum fyrirvara

Kjör Íslands í mannréttindaráðið bar að með skömmum fyrirvara. „Við tók sleitulaus vinna þar sem mest reyndi á fólkið okkar í Genf,“ segir Guðlaugur Þór. „Einhugur ríkti um að við ætluðum okkur að hafa jákvæð áhrif á líf fólks í þeim ríkjum sem staða mannréttinda er bág. Áður en Ísland kom til skjalanna höfðu stjórnvöld í Sádi-Arabíu sloppið að mestu við gagnrýni í ráðinu og ákall eftir úttekt Sameinuðu þjóðanna á ástandinu á Filippseyjum var hávært. Við þessu varð að bregðast og Ísland leiddi hóp ríkja í gagnrýni á Sádi-Arabíu í mars 2019 og í júlí 2019 samþykkti mannréttindaráðið að frumkvæði Íslands að óska eftir skýrslu um Filippseyjar frá mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna.“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í skýrslunni er farið yfir aðdraganda kjörs Íslands í mannréttindaráðið, hvernig undirbúningi var háttað og hvaða mál voru efst á baugi meðan á setu Íslands í ráðinu stóð. Enn fremur er gerð tilraun til að horfa gagnrýnum augum á setuna í mannréttindaráðinu, meta hvernig til tókst og hvaða lærdóm megi draga. Í skýrslunni er þeirri spurningu velt upp hvort Ísland eigi framvegis að sækjast reglulega eftir kjöri í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna, til skiptis við hin Norðurlöndin. 

Utanríkisráðherra kynnti skýrsluna í ríkisstjórn síðastliðinn föstudag og verður kynning á efni hennar á fundi utanríkismálanefndar Alþingis við fyrsta tækifæri. 

43. fundarlota mannréttindaráðsins hefst mánudaginn 24. febrúar og sækir utanríkisráðherra árlega ráðherraviku í tengslum við lotuna. Þetta er fjórða árið í röð sem Guðlaugur Þór tekur þátt í þessum viðburði en árið 2017 varð hann fyrstur íslenskra utanríkisráðherra til þess.

Skýrslan Ísland í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert