Mjög ölvaður í hraðakstri

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ökumaður sem mældist á 138 km hraða á Reykjanesbraut í fyrradag var greinilega mjög ölvaður þegar lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu för hans. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þá segir að nokkrir til viðbótar hafi verið kærðir fyrir of hraðan akstur á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 153 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. Hans bíður 210 þúsunda króna sekt og svipting ökuréttinda í einn mánuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert