Óku á 140 km hraða á stolnum bíl

Bílnum var að endingu ekið yfir naglamottu sem komið hafði …
Bílnum var að endingu ekið yfir naglamottu sem komið hafði verið fyrir við Selfoss. mbl.is/Eggert

Lögreglumenn á Suðurlandi handtóku nú rétt í þessu þrjá einstaklinga á bíl sem þeir eru taldir hafa stolið á Rangárvöllum. Þeim var veitt eftirför eftir Suðurlandsvegi að Selfossi en sinntu ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og óku á stundum á um og yfir 140 km hraða.

Að endingu óku þeir yfir naglamottu sem komið var fyrir við Selfoss og voru í framhaldi af því handteknir og færðir á lögreglustöð. Allir eru ómeiddir, bæði meintir brotamenn, aðrir vegfarendur og viðbragðsaðilar sem að aðgerðum komu, hvort sem þeir tilheyra lögreglu, slökkviliði eða sjúkraflutningum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Málið verður nú tekið til rannsóknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert