Sest við samningaborðið á ný

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, hér fyrir miðri mynd, á …
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, hér fyrir miðri mynd, á fundi samninganefndanna í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samninganefndir Reykjavíkurborgar og Eflingar komu saman til fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara kl. 10 í morgun, en síðasti fundur deiluaðila hjá sáttasemjara fór fram 7. febrúar.

Boðað var til fundarins í gær. Harpa Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að mikill vilji væri til þess að ná lausn í deilunni.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagði það sömuleiðis fagnaðarefni að boðað hefði verið til fundar í deilunni.

Ótíma­bundið verk­fall fé­lags­manna Efl­ing­ar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg hófst á sunnudagskvöld, en það tekur til um 1.850 félagsmanna sem vinna margvísleg störf hjá borginni á 129 starfsstöðvum, meðal annars á leikskólum, við umönnun, sorphirðu og fleira.

Ekki hafði verið fundað í deilunni síðan 7. febrúar.
Ekki hafði verið fundað í deilunni síðan 7. febrúar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert