Eldamennskan fór úr böndum

mbl.is/Eggert

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að reykræsta íbúð í Skipholti um fimmleytið en þar hafði eldamennskan farið úr böndunum.

Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins höfðu íbúar sofnað út frá eldamennskunni og var talsverður reykur í íbúðinni frá bakarofni í eldhúsinu. Engum varð þó meint af og gekk vel að hreinsa íbúðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert