Hreindýrakvóti minnkaður um 9% milli ára

Hreindýr á beit við Hvalnesskriður.
Hreindýr á beit við Hvalnesskriður. mbl.is/Sigurður Ægisson

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2020 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1.325 dýr á árinu, 805 kýr og 520 tarfa. Er um að ræða 8,7% fækkun veiðileyfa milli ára.

Í ár verður heimilt að veiða 23% færri kýr en í fyrra, en þá var veiðikvótinn 1.043 kýr. Hins vegar er heimilt að veiða 27% fleiri tarfa, en í fyrra mátti fella 408 slíka.

Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Fyrstu tvær vikur veiðitíma eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Í tilkynningu frá ráðuneytinu er bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum. Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Auglýsingu ráðuneytisins má lesa í heild hér, en þar kemur meðal annars fram hvernig svæðin skiptast niður.

Hreindýrakvóti fyrir árið 2020 eftir svæðum.
Hreindýrakvóti fyrir árið 2020 eftir svæðum. Tafla/UAR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert