Ótímabundið verkfall heldur áfram

Frá sáttafundinum sem var haldinn í gær.
Frá sáttafundinum sem var haldinn í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg lýsir vonbrigðum með viðbrögð Reykjavíkurborgar við tilboði sem samninganefndin lagði fram á fundi hjá ríkissáttasemjara í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu en viðbrögð borgarinnar komu fram í dag.

Í tilkynningunni segir að þetta sé í þriðja sinn sem samninganefnd Eflingar leggur fram viðræðugrundvöll til lausnar á deilunni sem borgin hafnar.

„Í tilboðinu var lagt til að greiða starfsfólki sérstakt starfstengt leiðréttingarálag til viðurkenningar á faglegri ábyrgð, álagi, starfstengdum kostnaði og fleiri þáttum sem félagsmenn hafa lagt áherslu á í viðræðunum,“ segir í tilkynningunni.  

„Upphæðir og forsendur álagsins yrðu ákvarðaðar út frá einstökum starfsheitum og vinnustöðum. Álagið yrði sérstök aukagreiðsla og kæmi ekki inn í grunnlaun til útreiknings á yfirvinnu- og vaktaálögum.

Einnig var gert ráð fyrir uppbótum vegna sérgreiðslna frá fyrra samningstímabili sem borgin hefur krafist að falli út. Lagt var til að upphæðir nýrra álaga og uppbóta taki sambærilegum hækkunum og launataxtar á samningstímanum. Fallist var á tillögu borgarinnar um breytta launatöflu.“

Fram kemur að samninganefnd og starfsfólk Eflingar hafi lagt mikla vinnu í tillöguna en hún var lögð fram eftir samráð við trúnaðarmenn félagsins hjá borginni.

„Reykjavíkurborg hefur enn á ný slegið á sáttahönd láglaunafólks. Ótímabundið verkfall heldur áfram.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert