Steingrímur stýrði víkingaklappi á Nýja-Sjálandi

Steingrímur J. Sigfússon lék á als oddi á Nýja-Sjálandi.
Steingrímur J. Sigfússon lék á als oddi á Nýja-Sjálandi. mbl.is/​Hari

Söngur Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, og taktlaust víkingaklapp sem hann stýrir í nýsjálenska þinginu vekur athygli í myndskeiði frá heimsókn Steingríms til Nýja-Sjálands.

Með Steingrími í för voru Helgi Hrafn Gunnarsson, 6. varaforseti Alþingis, og Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar, ásamt Jörundi Kristjánssyni, forstöðumanni forsetaskrifstofu.

Það sem hæst hefur borið í opinberri heimsókn forseta Alþingis til Nýja-Sjálands síðustu daga er þingmannasamstarf, samvinna á sviði jarðvarma og möguleikar á sviði ferðaþjónustu og viðskipta,“ segir á vef Alþingis.

Það er þó söngurinn og víkingaklappið, í upphafi og enda myndskeiðs, sem vekja líklega mesta athygli:

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert