Fyrrverandi bæjarstjóri hrekst frá Ísafirði

„Það er sannarlega skrítin tilfinning að finnast maður ekki lengur …
„Það er sannarlega skrítin tilfinning að finnast maður ekki lengur velkominn í samfélaginu sem ól mann upp. En þannig er það nú samt,“ segir Guðmundur í færslu á Facebook. mbl.is

Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, ætlar að flytja frá bænum ásamt fjölskyldu sinni. Hann segir að fjölskyldunni líði ekki lengur vel í bænum vegna atburða sem hafi átt sér stað frá því hann samdi um starfslok sín við bæjarstjórnina og „furðuskýringa“ sem hafi grasserað í kjölfar þeirra.

„Það er sannarlega skrítin tilfinning að finnast maður ekki lengur velkominn í samfélaginu sem ól mann upp. En þannig er það nú samt,“ segir Guðmundur í færslu á Facebook. Hann segir einnig að flutningar fjölskyldunnar hafi ekki verið augljósasti kosturinn í stöðunni eftir starfslokin.

„Hér hefur okkur liðið mjög vel, keypt okkur hús, börnin hafa aðlagast og við notið þess að vera nálægt vinum, fjölskyldu, fjöllum og heimahögum.“

„Fyrirferðamiklar stjórnmálahreyfingar umbera fantabrögð freka kallsins“

„En þetta er eins og það er. Við sjáum sæng okkar upp reidda og viljum ekki vera hluti af samfélagi þar sem fyrirferðamiklar stjórnmálahreyfingar umbera fantabrögð freka kallsins og dreifa svo rógburði til að réttlæta þau,“ skrifar bæjarstjórinn fyrrverandi.

„Við flytjum því að heiman öðru sinni á lífsleiðinni en förum héðan með stútfullan bakpoka af skínandi góðum minningum. Hér eigum við marga góða vini og fyrrverandi samstarfsfélaga. Fólk sem við treystum, vitum að skilur málavexti og þekkir okkur. Við erum reynslunni ríkari og höfum lært heilmikið um mannlegt eðli og innræti. Bæði dökkar hliðar og ljósar. Dökku minningarnar ætlum við að skilja eftir fyrir vestan. Flokka þær sem spilliefni. Þær ljósu tökum við með okkur á nýjan stað. Til moltugerðar og næringar.

Vestfirðir munu samt alltaf eiga hjörtu okkar. Það breytist ekki. Framtíðin er björt. Sjáumst síðar. Takk og bless,“ skrifar Guðmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert