Lifandilífslækur og Kláði tilnefnd

Skáldsagan Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson og smásagnasafnið Kláði eftir Fríðu …
Skáldsagan Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson og smásagnasafnið Kláði eftir Fríðu Ísberg eru tilnefnd fyrir Íslands hönd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020.

Skáldsagan Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson og smásagnasafnið Kláði eftir Fríðu Ísberg hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020 fyrir Íslands hönd. Þetta var tilkynnt fyrr í dag. 

Landsbundnar dómnefndir tilnefna í ár samtals 13 verk til verðlaunanna, en sameiginleg norræn dómnefnd velur vinningshafa ársins og verða verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn í Reykjavík 27. október í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur, sem samsvarar tæpum 6,5 milljónum íslenskra króna. 

Frá Álandseyjum er tilnefnd ljóðabókin När vändkrets läggs mot vändkrets eftir Mikaelu Nyman.

Frá Danmörku eru tilnefnd ljóðabókin YAHYA HASSAN 2 eftir Yahya Hassan og skáldsagan HHV, FRSHWN – Dødsknaldet i Amazonas eftir Hanne Højgaard Viemose.

Frá Finnlandi eru tilnefndar skáldsögurnar Vem dödade bambi? eftir Moniku Fagerholm og Ihmettä kaikki eftir Juha Itkonen.

Frá Færeyjum er tilnefnd skáldsagan Ikki fyrr enn tá eftir Oddfríði Marni Rasmussen.

Frá Noregi eru tilnefndar skáldsögurnar Den gode vennen eftir Bjørn Esben Almaas og Vi er fem eftir Matias Faldbakken.

Frá samíska málsvæðinu er tilnefnd ljóðabókin Juolgevuoððu eftir Niillas Holmberg.

Frá Svíþjóð eru tilnefndar ljóðabókin Marginalia; Xterminalia eftir Johan Jönson og skáldsagan W eftir Steve Sem-Sandberg.

Smásagnasafnið Kláði eftir Fríðu Ísberg eftir er tilnefnt til Bókmenntaverðlauna …
Smásagnasafnið Kláði eftir Fríðu Ísberg eftir er tilnefnt til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020 fyrir Íslands hönd. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sterk tilfinningaleg nálgun

Í umsögn íslensku dómnefndarinnar um Kláða segir: „Sagnasafnið Kláði eftir Fríðu Ísberg er fallegt dæmi um þá vorvinda sem borist geta með ungum höfundum inn í bókmenntirnar. Sögumaður horfir með nýjum augum á gömul viðfangsefni sem í frásögnunum verða á margan hátt önnur en þau voru. Endurnýjanir og breytingar eru meðal helstu lífsskilyrða bókmenntanna og stundum gerast þær með því móti að inn á sviðið stígur nýtt fólk sem lítur viðfangsefnin öðrum augum en við eigum að venjast. Frásagnarhátturinn er bæði raunsæilegur og módernískur.  Gildi bókarinnar liggur framar öðru í sterkri, tilfinningalegri nálgun sem krefur lesandann svara um viðhorf og gildi í nútímanum.

Sögurnar í Kláða fjalla í stórum dráttum um það hvernig í ósköpunum er hægt að vaxa úr grasi og taka því hlutskipti sem bíður nútímamanns. Það er skrifað um kynlíf og parasambönd; átök kynslóða og kynja; klám og firringu; böl staðalímynda og fíknar; sekt og kúgun; hefðir með tómahljóði; harðsótta, tímafreka ást; og þrautseiga, kæfandi sorg.“

Skáldsagan Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson er tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs …
Skáldsagan Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson er tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020 fyrir Íslands hönd. mbl.is/Einar Falur

Einstök stílgáfa Bergsveins 

Um Lifandilífslækur segir: „Verkið er sögulegur skáldskapur um ögurstund í lífi íslenskrar þjóðar en jafnframt um þá örlagatíma heillar siðmenningar sem heimsbyggðin horfist nú í augu við. Bergsveinn Birgisson staðsetur verk sitt á landamærum tveggja heima. Raunsæi og vísindahyggja 18. aldar stendur andspænis náttúrutrú og dulúð. Ekki verður með góðu móti litið framhjá tilvísun verksins til nútímans þar sem hættulegar hagsmunakreddur ógna mennsku og tilfinningagreind. 

Með einstakri stílgáfu býður Bergsveinn lesanda að ferðast með sér aftur í aldir með upplýsingarmanninum Markúsi Árelíusi. Harðbýlt og hrjóstrugt Ísland 18. aldar, illa leikið eftir gríðarlegar náttúruhamfarir, er ógleymanlegt sögusvið sem höfundur miðlar af miklu næmi. Markús Árelíus er sendur til hins vindbarða Íslands til þess að vinna skýrslu fyrir yfirboðara sína hjá dönskum stjórnvöldum. Þeir íhuga að flytja allt nýtilegt vinnuafl til starfa í Danmörku og Noregi. Vopnaður mælitækjum og upptendraðri vitund upplýsingarmannsins leggur Markús Árelíus leið sína norður á Strandir, en náttúran neitar að lúta lögmálum hans og leikur mælitækin grátt.

Eins og fyrri verk Bergsveins sýna hefur hann meistaraleg tök á hinni sögulegu skáldsögu. Við bætist yfirgripsmikil þekking hans á söguefni og sögusviði. Það er makalaust að sagan Lifandilífslækur skuli í senn geta verið svo trú tíma sínum og rúmi í norrænni sögu en jafnframt svo beinskeytt í tilvísun sinni til nútímans.“

Allar tilnefndu bækurnar til útláns á bókasafni Norræna hússins

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 og eru veitt fyrir fagurbókmenntaverk sem er samið á einu af norrænu tungumálunum. Markmiðið með verðlaununum er að vekja áhuga á bókmenntum og tungumálum grannþjóðanna sem og menningarlegri samkennd þeirra.

Skrifstofa hvorra tveggja bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hefur verið til húsa í Norræna húsinu frá 2014. Náið samstarf skrifstofunnar við bókasafnið í Norræna húsinu skilar sér í því að allar tilnefndu bækur ársins voru aðgengilegar á frummálunum á bókasafninu í Norræna húsinu frá og með deginum í dag. Einnig eru allar vinningsbækurnar frá upphafi aðgengilegar til útláns á safninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert