Rafmagnsbilun á Siglufirði og Ólafsfirði

Frá Siglufirði í desember síðastliðnum.
Frá Siglufirði í desember síðastliðnum. Ljósmynd/Mikael Sigurðsson.

Rafmagnsbilun er nú á Siglufirði og Ólafsfirði. Verið er að leita að bilun.

Þetta kemur fram á vefsíðu RARIK.

Vegagerðin greinir frá því að bæði Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli séu lokaðir vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Ekki eru líkur á því að síðarnefndi vegurinn verði opnaður í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert