Allt að átta stiga frost í dag

Það verður frost á landinu í dag.
Það verður frost á landinu í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er norðan 8 til 15 metrum á sekúndu og dálitlum éljum norðan til á landinu en þurru veðri syðra.

Lægir og styttir upp með deginum. Hæg vestlæg átt með stöku éljum suðvestan til í kvöld.

Á morgun verður vestan 8-15 og éljagangur, en bjart veður norðaustan- og austanlands.

Frost verður á bilinu 0 til 8 stig að deginum, kaldast inn til landsins, en herðir á frosti í nótt.

Í yfirliti frá Vegagerðinni kemur fram að mikið til er greiðfært á suðvesturhorni landsins og með suðurströndinni en vetraraðstæður eru víðast hvar í öðrum landshlutum.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert