Lýsir yfir vonbrigðum með vinnubrögð Eflingar

Frá sáttafundi Eflingar og Reykjavíkurborgar á dögunum.
Frá sáttafundi Eflingar og Reykjavíkurborgar á dögunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lýst yfir vonbrigðum með vinnubrögð samninganefndar Eflingar.

Fram kemur í tilkynningu að samninganefnd Eflingar hafi í gær lýst yfir árangurslausum viðræðum við samninganefnd SNS án þess að hafa gefið SNS færi á að ræða eða svara kröfunum sem félagið hefur lagt fram.

Þar segir einnig að fulltrúar Eflingar hafi tekið þátt í viðræðum Starfsgreinasambands Íslands og SNS sem fóru fram í haust og fram yfir áramót sem lauk með undirritun kjarasamnings 16. janúar.

„Þremur dögum fyrir undirritun slitu fulltrúar Eflingar samstarfi félagsins við Starfsgreinasambandið. Frá þeim tíma hafa verið haldnir tveir fundir með Eflingu í deilunni undir stjórn ríkissáttasemjara,“ segir í tilkynningunni.

„Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga lýsir vonbrigðum með þessi vinnubrögð samninganefndar Eflingar og telur þau ekki til þess fallin að greiða fyrir samningum aðila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert