Óvissustig um tíma á Keflavíkurflugvelli

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugturn á Keflavíkurflugvelli tilkynnti um grænt óvissustig, það er minnsta mögulega óvissustig, í morgun þegar flugvél með bilun í rafkerfi kom inn til lendingar.

Vélin lenti lenti svo heilu og höldnu, að því er segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. 

Þá þurfti að lenda vél sem var á leið frá Havana til Moskvu á Keflavíkurflugvelli í nótt vegna veikinda farþega um borð. Viðkomandi var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala í Fossvogi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert