Tvær hraðamyndavélar teknar í notkun austan Selfoss

Þann 1. mars verða tvær hraðamyndavélar á Hringvegi við bæinn …
Þann 1. mars verða tvær hraðamyndavélar á Hringvegi við bæinn Tún í Flóa austan Selfoss teknar í notkun. Ljósmynd/Vegagerðin

Tvær hraðamyndavélar verða teknar í notkun austan við Selfoss næstu mánaðamót. Myndavélarnar verða á þjóðveginum við bæinn Tún í Flóa. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. 

Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.

Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Samgöngustofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert