Geta skráð sig vegna kórónuveirunnar

Sóttvarnalæknir ræður ferðamönnum frá ónauðsynlegum ferðum til Kína og ítölsku …
Sóttvarnalæknir ræður ferðamönnum frá ónauðsynlegum ferðum til Kína og ítölsku héraðanna Lombardia, Veneto, Emilia-Romagna og Piedmont. AFP

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur opnað sérstakan gagnagrunn fyrir Íslendinga erlendis sem óska eftir að vera skráðir hjá utanríkisráðuneytinu og upplýstir um ferðaráð vegna COVID-19 veirunnar meðan á dvöl þeirra stendur.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að íslensk stjórnvöld hafi uppi umtalsverðan viðbúnað vegna kórónuveirunnar COVID-19.

Upplýsingar í grunninum verða aðeins notaðar í öryggisskyni og til að utanríkisráðuneytið eða íslenskt sendiráð geti náð sambandi við viðkomandi ef þörf krefur. Gagnagrunnurinn telst eign utanríkisráðuneytisins og verða upplýsingar úr grunninum ekki veittar til þriðja aðila nema öryggi þeirra sem skráðir eru í gagnagrunninn krefjist þess.

Utanríkisráðuneytinu hafa í dag borist fyrirspurnir frá Íslendingum erlendis, meðal annars á Tenerife. Þeim er ráðlagt að kynna sér ráðleggingar sóttvarnalæknis, fylgjast vel með tilmælum stjórnvaldaá dvalarstað sínum og skrá sig hjá borgaraþjónustunni kjósi þeir svo.

Fólki sem finnur fyrir einhvers konar sjúkdómseinkennum við komuna aftur heim til Íslands er bent á að hringja í síma Læknavaktarinnar, 1700. Vaktsími borgaraþjónustunnar 545 0 112 er opinn allan sólarhringinn fyrir neyðartilvik.

Utanríkisráðuneytið gefur almennt ekki út ferðaviðvaranirmeðal annars vegna takmarkaðra möguleika utanríkisþjónustunnar til að leggja sjálfstætt mat á hættuástand á hverjum stað. Í staðinn bendir ráðuneytið á ferðaviðvaranir utanríkisráðuneyta grannríkjanna, sérstaklega Norðurlandanna og Bretlands. 

Sóttvarnalæknir ræður ferðamönnum frá ónauðsynlegum ferðum til Kína og ítölsku héraðanna Lombardia, Veneto, Emilia-Romagna og Piedmont. Nánari upplýsingar um COVID-19 og ferðaráð má finna á vef landlæknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert